Nafn: Gunnar Björn Björnsson
Fæðingardagur: 19. júlí 1974
Stjörnumerki: Krabbi
Börn: Andri Þór og Jóhanna Arna
Foreldrar: Björn Birgisson og Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
Talnaspeki
Lífstalan hér er 11
Eiginleikar sem tengjast þessari tölu eru:
Andans maður, innsæi, hugsjónir og draumar - en hættir til að færast of mikið í fang
Árstala er reiknuð út frá fæðingardegi og því ári sem við erum stödd á. Hún á að gefa vísbendingar um þau tækifæri og hindranir sem árið færir okkur.
Árstalan 2006 er 7
Ríkjandi þættir í þessari tölu er: Lífsskoðun og skilningur
Árstalan 2007 er 8
Ríkjandi þættir í þessari tölu er: Efnahagslegur árangur
Persónuleikatré brúðgumans
Álmviður - Göfuglyndi
12.01-24.01 & 15.07-25.07
Manneskjan er í góðu ásigkomulagi, hugar vel að útliti sínu og klæðist fallegum fatnaði. Hún gerir ekki miklar kröfur en á erfitt með að fyrirgefa mistök.
Manneskjan tekur illa skipunum, vill frekar stjórna sjálf. Hún er bæði glaðvær og gjafmild, og göfuglynd með eindæmum. Hér er á ferðinni áreiðanlegur förunautur, hagsýnn og ákaflega skemmtilegur.
Brúðurin
Nafn: Theodóra Mýrdal
Fæðingardagur: 12. ágúst 1975
Stjörnumerki: Ljón
Börn: Andri Þór og Jóhanna Arna
Foreldrar: Þór Mýrdal og Jóhanna Gunnarsdóttir
Talnaspeki
Lífstalan hér er 6
Eiginleikar sem tengjast þessari tölu eru:
Ábyrgð, vernd, næring, samfélag, jafnvægi og samúð - hættir til sektarkenndar
Árstala er reiknuð út frá fæðingardegi og því ári sem við erum stödd á. Hún á að gefa vísbendingar um þau tækifæri og hindranir sem árið færir okkur.
Árstalan 2006 var 1 og ríkjandi þættir í þessari tölu er:
Nýtt upphaf í lífi þínu
Árstalan 2007 er 2 og ríkjandi þættir í þessari tölu er:
Þróun, samvinna og þolinmæði
Persónuleikatré brúðarinnar
Askur - Metnaður
25.05-03.06 & 05.08-13.08 & 22.11-01.12
Manneskjan er óvenju aðlaðandi, lífleg, hvatvís og kröfuhörð. Hún tekur ekki gagnrýni vel, er mjög metnaðargjörn, og býr yfir góðri greind og hæfileikum.
Manneskjan leikur sér að örlögum sínum og er sjálfhverf á stundum. Henni hættir til að láta heilann ráða ferðinni í stað hjartans, en er trygg í ástum og tekur náin kynni mjög alvarlega.
Hvernig hvar og hvenær?
Við kynntumst á blindu stefnumóti þann 16. mars 2002 og höfum verið saman síðan :) eða eins og sumir segja "það hefur ekki slitnað slefið á milli síðan".
Hvernig eiga merkin saman?
Krabbi og Ljón
Sterkar tilfinningar
Krabbi og Ljón eru ólík. Samband þeirra þarf því að taka mið af málamiðlunum. Einkennandi eru sterkar tilfinningar, sem þýðir að sambandið getur orðið heitt, en einnig viss staðfesta, því bæði þessi merki halda fast í það sem þeim er kært. Það þýðir að ef þau á annað borð ná saman, þá má búast við að sambandið verði varanlegt.
Aðhald og hugsjónaeldur
Krabbi og Ljón bæta hvort annað upp. Krabbinn er akkeri sem getur veitt Ljóninu aðhald, enda augljóslega gott fyrir hið stórtæka Ljón að fá aðhald. Ljónið ýtir aftur á móti á Krabbann og kemur með eld hugsjóna inn í líf hans.
Innileiki og skemmtanalíf
Áherslurnar í sambandi Krabba og Ljóns þurfa að vera breytilegar og lífsstíll þeirra að einkennast af skapandi athöfnum, skemmtunum og menningarlífi á milli þess sem lögð er áhersla á rólegri og innilegri athafnir, ferðir út í sveit, heimilislíf og vinnu. En þau ná að sameinast um þetta, þá verður sambandið ánægjulegt fyrir þau bæði.
Ljónið (23.júlí - 22.ágúst) og
Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Auðmýkt einkennir þig ekki en þú býrð yfir áberandi miklum kjarki og hefur ekki áhyggjur af smáatriðum en því er öfugt farið með krabbann sem á það til að mikla fyrir sér örsmá vandamál líðandi stundar. Elskhugi þinn kemur hinsvegar á móts við þig og langanir þínar og þú kýst að gera slík hið sama gagnvart honum...
Krabbinn (22.júní - 22.júlí) og
Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Ljónið á það jafnvel til að virðast hrokafullt en þú, krabbinn, veist vissulega betur hvernig í pottinn er búið því þú ert sannarlega mjög blíður elskhugi sem er fær um að tengjast ljóninu á réttan máta frá upphafi og öllum stundum reyndar...