Brúđkaupiđ okkar

Auglýsing

Leit

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Teljari

29. júlí 2006 klukkan 04:23


Við ætlum að ganga í það heilaga 12. ágúst 2007
Daisypath Ticker

Brúđur 12. ágúst 2007
Engin athugasemd

Kjóllinn, kirkjan og salurinn

19. júlí 2006 klukkan 05:02

Ég er mikið búin að vera að spá í þennan kjól, hvernig kjóll færi mér.  Ég sá mjög fallegan kjól á myndum áðan, konan er svipuð í vexti og ég nema sá kjóll var með síðum ermum og ég veit ekki hvort svona kjóll myndi fara mér þar sem ég er svo stutt.  En það er nú meira en ár í þetta ennþá þannig að ég þarf ekkert að flýta mér að finna kjól.  Ja ekki nema við myndum flýta þessu, en ég held að það eigi ekki eftir að gerast.

Svo er það salurinn og kirkjan.  Kirkjan fer eftir því hvar við fáum sal.  Við viljum ekki gifta okkur í Keflavíkurkirkju nema við fáum sal í Keflavík og öfugt með Grindavíkurkirkju.  Persónulega finnst mér Keflavíkurkirkja fallegri.  Í fyrsta skiptið sem ég sá Grindavíkurkirkju, hélt ég að þetta væri eitthvað allt annað en kirkja.

Kirkjulundur í Keflavík er ekkert smá dýr, þrátt fyrir gæði finnst mér.  Hann kostar núna 45000 en á eftir að hækka á næsta ári!  Ég þori varla að athuga hvað við gætum fengið salinn í Grindavíkurkirkju á, því þá er svo mikil hætta að þetta fréttist of fljótt.  Er ég biluð?   Já ég held það Brosandi.

Annars held ég að við verðum að panta kirkjuna og salinn í síðasta lagi um áramótin, bara til að vera komin með þetta.  Æi mér finnst bæði of langt í þetta og stutt!  Eina stundina langar mig að flýta þessu en hina er þetta bara þægilega langt þangað til.

Jæja ég er hætt þessu rugli...ætla að fara að googla brúðarkjóla Brosandi

Brúđur 12. ágúst 2007
Engin athugasemd

Undirbúningurinn

16. júlí 2006 klukkan 20:59
Ótrúlegt en satt þá er búið að ákveða næstum því allt, eigum að vísu eftir að panta allt en það er nú meira en ár í þetta enn sem komið er og nógur tími.  Gestalistinn er næstum því allur kominn, brúðguminn á bara eftir að bæta við hverjum úr sinni fjölskyldu hann vill bjóða. 

Við viljum hafa þetta sem einfaldast og ódýrast en við viljum samt gifta okkur í kirkju og ég vil gifta mig í brúðarkjól.  Ég hugsa að það verði leigður kjóll fyrir mig en að við kaupum föt á hann og börnin.  Ég ætla að athuga hvað salurinn í Grindavíkurkirkju kostar, mér finnst hann að vísu ekkert voða fallegur en það er alveg hægt að breyta því með réttum skreytingum.  En hann er bara svo fín stærð.  Gestalistinn er á bilinu 45 til 60 manns með börnunum.  Við bjóðum bara þeim nánustu.

Hérna er hugmynd af veitingum fyrir þetta:

    • Brúðarterta
    • Skinkubrauðterta
    • Rækjubrauðterta
    • Heita réttin sem tengdó bjó til fyrir skírnina hennar litlu
    • Ostabakkar með kexi, brauði, vínberjum og sultu - athuga frá osta og smjörsölunni
    • Pinnamatur frá osta og smjörsölunni - bæði sætan og ósætan
    • Kaupa alls konar brauð frá Jóa Fel
    • Álegg og pestó
    • Súkkulaðikaka
    • Marengskakan hennar mömmu (mislukkaða tertan)
    • Ostakökur (Osta og smjörsalan) - veisluostatertu
    • Ostabökur (Osta og smjörsalan)
    • Innbakaður Dalabrie (Osta og smjörsalan)
    • Kaffi
    • Gos
    • Freyðivín til að skála í - eplacider fyrir þá sem vilja óáfengt eða sprite.

Eftir veisluna er ég komin með hugmyndir af stöðum til að fara á bara tvö og efst á lista er Hótel Geysir.  En þar er boðið upp á fallega skreytta svítu í smáhýsi með hornbaðkari fyrir brúðhjón.  Og boðið er upp á freyðivín.  Og svo er veitingastaðurinn víst mjög fínn.

Með ljósmyndara, er ég svolítið spennt fyrir ljósmyndara að nafni Lárus 
www.larus.com

Brúđur 12. ágúst 2007
Engin athugasemd

Ansi mikiđ komiđ á stuttum tíma

06. júlí 2006 klukkan 00:44
Jæja við ætlum að gifta okkur þann 12. ágúst 2007 en þann dag verð ég líka 32 ára.  Við trúlofuðum okkur þann 24. desember 2003.  Ég er búin að setja upp gestalistann, setja saman hvernig veitingar eiga að vera á boðstólum, búa til boðskortið eða alla vega hugmynd númer eitt.  Er búin að setja niður óskir vegna gjafa.  Og það er meira en ár í brúðkaup Brosandi.
Brúđur 12. ágúst 2007
Engin athugasemd

Ţessi fćrsla er lćst međ lykilorđi.

06. júlí 2006 klukkan 00:35
Brúđur 12. ágúst 2007
Engin athugasemd