16. október 2007 klukkan 15:16
Brúđur 12. ágúst 2007
26. september 2007 klukkan 22:38
Vá það eru liðnir 45 dagar síðan brúðkaupið var....tíminn fljótur að líða! Við fórum þann 14. ágúst til Rómar og orð fá því varla lýst hvað þessi borg er falleg og hvað þessi vika var yndisleg. Við höfðum gott að þessu, að fara bara tvö ein og fá að vera par en ekki mamma og pabbi :) En það var yndislegt að koma heim og knúsa gullmolana okkar.
Við erum ekki búin að fá neinar myndir úr brúðkaupinu þannig að ég get ekki sýnt ykkur þær en ég ætla að hlaða öllum myndum úr brúðkaupsferðinni inn á heimasíðu barnanna á barnalandi fyrir ykkur. En annars erum við afskaplega lukkuleg með þennan yndislega dag sem við áttum með ykkur og við þökkum ykkur kærlega fyrir okkur og var gaman að sjá að voru flestir sem gátu séð sig fært að njóta þessarar stundar með okkur.
Ég hugsa að ég haldi ekki áfram að blogga hérna en þið sem viljið halda áfram að fylgjast með okkur, þá blogga ég venjulega á http://doram.bloggar.is
Þegar brúðkaupsmyndir koma, mun ég setja þær á heimasíður barnanna og þar sem þær eru læstar með lykilorði þá getið þið annað hvort sent mér póst theodoram@simnet.is og ég skal senda ykkur lykilorðið tilbaka en til að byrja með verða brúðkaupsalbúmin ólæst. En þið verðið að biðja um lykilorðið til að sjá gullmolana okkar :)
Eitt sem mér fannst alveg yndislegt að sjá í veislunni, voru allir barnabílastólarnir, vagnarnir og kerrurnar. Yndislegt að sjá svona fjölgun á gullmolum í fjölskyldunni okkar.
Endilega haldið áfram að fylgjast með okkur!!
Bestu kveðjur
Frú Dóra og Herra Gunnar
Nú er maður komin í þennan dagsdaglega gír, ég er byrjuð í skólanum á minni síðusta ári og stefni að því að útskrifast sem leikskólakennari þann 21. júní 2008! (já ég er farin að telja niður!!!)
Brúđur 12. ágúst 2007
10. ágúst 2007 klukkan 17:57
Ætli nokkrum takist það fyrir brúðkaupið sitt að gera EKKERT síðustu dagana? Ég er þessa vikuna búin að vera í andlitsbaði og er núna með nýsnyrtar neglur. Fór líka í morgun í strípur og lagfæringu á hárinu.
Æfingin í kirkjunni var í gær og allt gekk bara vel, nema Andri Þór vildi ekki rétta Jónu Kristínu púðann, nei hann henti púðanum upp á altari. Spurning hvernig hann verður á sunnudaginn, en Alexandra er tilbúin að hlaupa í skarðið ef hann tekur upp á einhverju. Ég sótti dúkana, freyðivínið og hringana okkar í dag. Maður ætti að fara reglulega með hringana og láta pússa þá, það er ótrúlegt hvað þeir voru orðnir mattir. Þeir eru bara eins og nýir núna.
En við verðum brúðkaupsnóttina í Bláa Lóninu, nei ekki ofan í því heldur í lækningalindinni og förum meðal annars í 50 mínútna slökunarnudd á mánudeginum. Við munum borða á veitingastaðnum á sunnudagskvöldið. Verðum eflaust mjög áberandi í salnum, í brúðardressinu :)
Við fáum ekki allan salinn á sama tíma á morgun, þar sem minni salurinn er upptekinn á milli 15 og 18 vegna skírnarveislu. En mesta vinnan er í stóra salnum og fínt að fá hann sem fyrst.
Ji nú eru bara rétt um 2 dagar í þetta :) Ekki laust við að maður sé orðin pínu spenntur.
Brúđur 12. ágúst 2007
03. ágúst 2007 klukkan 01:00
Jæja ég held að ég sé bara búin að búa til alveg ótrúlega flotta glærusýningu, með tónlist og alles! En annars er bara allt í góðum gír, við hittum prestinn í gær og munum á morgun fá tíma í kirkjunni fyrir æfingu í næstu viku. Nú fer þetta að verða raunverulegra og raunverulegra...bara 9 dagar :) Ef það verður engin jarðaför í kirkjunni á föstudeginum, fáum við salinn um hádegisbilið en annars gæti orðið pínu seinkunn en eins og er, þá er engin jarðaför bókuð. Valgerður er búin að panta allt fyrir blómin og skreytingarnar, sluppum mjög vel þar. Ég fór svo á stjá í dag til að hamstra gos og held því áfram á morgun, um að gera að nota tilboðin fyrir verslunarmannahelgina!
Já svo á ég eftir að fá servíettur, ætla að fara upp í Blómaval á morgun og ganga frá því. Ég þarf síðan að fara í blómabúðina sem Valgerður vinnur í til að sækja efni sem hún pantaði fyrir okkur, til að skreyta borðin en ég þarf að láta saga þá rúllu í tvennt.
Brúđur 12. ágúst 2007
01. ágúst 2007 klukkan 08:49
Það greinilegt að ég sé að fara að gifta mig, því núna dreymir mig ekkert annað en brúðkaup og þá sérstaklega þá hluti sem geta farið úrskeiðis! Núna dreymdi mig að ég ætti að farða mig sjálf...á miðjum laugarveginum...úti!! Og ég fann ekkert meik og brúðarkjóllinn var ekki einu sinni brúðarkjóll, heldur einhver stuttur kjóll sem var sæblár á litinn (Turqouis). Þið getið ímyndað ykkur það að ég var mjög fegin þegar ég vaknaði, að þetta var bara draumur!
Annars fattaði ég í gær að 10. ágúst er föstudagur en ekki fimmtudagur, ég vissi það sko...var bara búin að gleyma því aðeins! Við förum á fimmtudeginum að sækja fötin og svo fara börnin og Gunnar í klippingu. Ég ætla að láta snyrta hárið á Jóhönnu Örnu og fá einn lokk til geymslu :) Fyndið, Andri Þór fór í fyrsta skiptið í klippingu rétt fyrir tveggja ára afmælið, Jóhanna Arna fór fyrir eins árs afmælið :)
Við fáum salinn að öllum líkindum um hádegisbilið á laugardeginum, það getur samt aðeins tafist ef það er jarðaför á föstudeginum en það er engin slík bókuð eins og er. Það er víst ekki venja að borga neitt sérstaklega fyrir kirkjuna eða kirkjuvörðinn hérna í Keflavík, hvort það sé af því að við erum í þessari sókn veit ég ekki. En ég veit að fólk hefur þurft að borga þetta í öðrum kirkjum. En ekki kvarta ég, tveimur kostnaðarliðum færra að borga.
Við förum að hitta sr. Jónu Kristínu í kvöld, að gera giftingarskýrsluna og ræða betur um athöfnina. Tengdó ætla að koma hingað í kvöld og passa fyrir okkur en þau koma líka í mat.
Búið er að panta allar skreytingar og við sluppum ótrúlega vel þar, Valgerður vinkona ætlar að sjá um þetta fyrir okkur og við borgum bara það sem hún kaupir í heildsölunni, engin álagning þar :)
Við erum búin að panta brúðkaupsferðina og í gær pantaði ég frá hótelinu akstur frá flugvellinum. En við erum að fara til Rómar í eina viku frá 14. ágúst og verðum á Hotel Roma Park Fínt að vera búin að panta aksturinn því við höfum aldrei komið til Ítalíu og vitum ekkert hvernig þessi flugvöllur lítur út eða hvað við þyrftum að borga í venjulegum taxa en ég hugsa að það yrði vel yfir 50 evrur.
Árni Stefán er að redda þvílíkum lúxusbíl fyrir okkur sem brúðarbíl, hann ætlar líka að vera bílstjóri fyrir okkur. Síðast þegar ég vissi, þá var hann að reyna að fá einhvern Audi jeppa sem kostar frá Heklu um 15 milljónir. Örugglega eina skiptið sem við munum stíga upp í svo dýran bíl :).
Með kveðju,
Dóra
Brúđur 12. ágúst 2007
26. júlí 2007 klukkan 12:10
Jæja þá er ég búin að bóka mig í alls konar dekur og dúllerí sem felst í því að vera brúður, síðustu dagana fyrir brúðkaupið.
Þann 7. ágúst fer ég í andlitsbað, plokkun og litun
Þann 8. ágúst fer ég í prufuförðun
Þann 10. ágúst fyrir hádegi fer ég í prufugreiðslu og strípur ef þess þarf
Þann 10. ágúst eftir hádegi fer ég í neglur :)
Annars átti ég langt og ítarlegt símtal við hana tengdamóður mína í gærkvöldi, náði að afstressa hana en hún er eitthvað stressuð blessunin en ég náði að sannfæra hana allt gengi vel og væri á réttri leið. Við (ég og Gunnar) erum akkurat ekkert stressuð og vitum að allt fer vel og þessi dagur verður alveg yndislegur.
Something old, something blue, something borrowed and something new......
Er búin að redda:
Something blue - það er blá slaufa á sokkabandinu
Something new - brúðaskórnir, taskan og undirfatnaðurinn er auðvitað nýtt
Something old og borrowed - ætla að fá skartgripi hjá tengdó til að máta með kjólnum og hugsanalega get ég þá slegið tvær flugur í einu höggi....
Við fáum salinn á laugardeginum og reynum að stefna að því að það náist að skreyta hann í fyrra lagi þar sem við viljum eiga náðugt og rólegt kvöld og fara snemma að sofa.
Brúđur 12. ágúst 2007
23. júlí 2007 klukkan 21:40
Á föstudaginn næsta fer ég í lokamátun á kjólnum og ég hlakka svo ótrúlega mikið til :) Við munum síðan hafa samband við Jónu Kristínu í byrjun næstu viku uppá að finna tíma til að hittast aftur og gera þá meðal annars þessa giftingarskýrslu. Annars var ég að dunda mér við síðuna hérna á laugardaginn og bætti inn alls konar fróðleik inn á "Brúðhjónin" - aðallega stjörnuspeki og slíku en það er svo gaman að spá í þessa hluti. Nú er búið að gæsa og steggja, það er frá og var gaman hjá okkur báðum.
Ég fæ síðan skanna lánaðann hjá Hjördísi vinkonu á föstudaginn og þá fer ég í það að skanna inn gamlar myndir af okkur en planið er að hafa einhvers konar glærusýningu í gangi í veislunni. Það eru reyndar ekki til mikið af myndum okkur saman, ótrúlegt en satt eftir 5.5 ár saman en svona er þetta stundum. Enda er ég miklu sætari og meira krútt sem barn en sem fullorðin kona :).
Annars langar mig til að setja hérna á síðuna upplýsingar um veislustjórnina fyrir þá sem hafa áhuga og vilja koma einhverju á framfæri við veislustjórann. En eins og komið hefur fram hérna áður, þá er Doddi (eða Georg) veislustjórinn og gsm númerið hans er 6915155/5170555 og netfangið hans er georg@doddi.net
Brúđur 12. ágúst 2007
21. júlí 2007 klukkan 09:40
Jæja þá eru rétt um þrjár vikur í atburðinn og ég tók mig til og pantaði það sem þarf að panta varðandi veitingarnar. Svo ætlar Árni Stefán að sjá um brúðarbílinn fyrir okkur, það er frábært. Ég þarf síðan að fara að tala við Valgerði varðandi blóm og skreytingar. Pantaði líka dúkana á fimmtudaginn. Fyndið hvað það eru mörg smáatriði fyrir svona brúðkaup, er núna til dæmis að pína fæturna á mér, að ganga skóna til. Vil frekar pína þá núna en að pínast á brúðkaupsdaginn. En það sem ég væri til í núna, væri alger þögn og rólegheit en það er víst ekki í boði þegar maður á tvö ung börn.
Brúđur 12. ágúst 2007
18. júlí 2007 klukkan 17:15
Jæja við erum búin að gera alveg ótrúlega mikið finnst mér :). En svona til að leyfa ykkur að fylgjast með hvað við erum búin að gera ætla ég að telja það upp hér....ykkur til mikillar ánægju geri ég ráð fyrir!!!
Búin að panta kirkju, sal og prest
Búin að panta brúðartertu
Búin að panta föt á brúði, brúðguma og börn
Búin að tala við vinkonu mína um blómaskreytingarnar og búin að ákveða litaþemað
Búin að panta brúðargreiðslu og brúðarförðun
Búin að panta gestabók og kerti og það kemur frá nunnunum í Karmelklaustrinu (þær eru ótrúlegar í höndunum þessar konur)
Búin að fá hringapúðann
Búin að fá sápukúlur fyrir gestina - ég ætla ekki að hafa smáfugladráp á minni samvisku og bjóða ykkur upp á hrísgrjón fyrir ykkur að grýta í okkur! Enda eru sápukúlur miklu rómantískri!!
Búin að ákveða veitingarnar handa ykkur öllum!
Búin að fá þrjár frábærar konur til að vinna fyrir okkur í sal og eldhúsi
Búin að panta dúka fyrir öll borð
Búin að fara með brúðarglösin til að láta grafa í þau
Búin að biðja frænda Gunnars að sjá um myndatökuna fyrir okkur og okkur til mikillar ánægju ætlar hann Jón Hrói að sjá um þennan hluta.
Búin að tala við organistann og söngkonuna. En organistinn mun einnig spila undir hjá henni.
Búin að ákveða brúðkaupsferð til Rómar í eina viku - brottför 14. ágúst
Búin að fá veislustjóra, en það verður hann Georg Aspelund, einn af bestu vinum hans Gunnars. Þannig að þið bara ræðið við hann ef þið viljið gera eitthvað eða segja í veislunni fyrir framan alla.
Það sem við eigum ennþá eftir að ganga frá
Brúðarbíll
Hvað við ætlum að gera eftir veislu - endum örugglega að sofa heima brúðarnóttina
Fara með hringana í pússun og láta grafa dagsetninguna í þá, gerum það strax eftir verslunarmannahelgina.
Ég á eftir að fá tíma í nöglum
Svo eitthvað meira sem ég man ekki eftir eins og er.
Erum við ekki dugleg??
Brúđur 12. ágúst 2007
13. júlí 2007 klukkan 22:46
Ósköp er tíminn nú fljótur að líða. Á fimmtudaginn vorum við verðandi hjónin með Andra Þór að finna föt á hann og brúðgumann og fundum við þau í Tveimur Hjörtum þar sem ég leigi kjólinn minn. Þá fattaði ég að það voru tvær vikur í lokamátun hjá mér! Mér finnst svo stutt síðan að ég pantaði þennan tíma og þá voru 5 vikur í þetta. En þetta er allt að smella saman, við gátum afrekað margt á fimmtudaginn. Veislustjórinn verður Georg Aspelund Þorkelsson einn besti vinur hans Gunnars.
Brúđur 12. ágúst 2007